Góður dagur mar... fékk að sofa út í morgun og fór svo á flakk með Steinari, við kíktum við hjá Sverri Bollasyni á Línuhönnun, fengum okkur kaffi á Cafi Konditori á Suðurlandsbraut, fórum í IKEA, Góða hirðirin, ég fór svo í geggjað nudd á Heilsa Spa (Saga heilsa spa? Spa heilsa...?????) í Kópavogi, við borðuðum svo kvöldmat á Vegamótum og röltuðum í bænum í frábæru veðri. Loksins er ég komin heim til að læra smá (þó klukkan sé að verða tólf !!)
Ég vil óska Sverri góðrar ferðar á morgun til Svíþjóðar og vona að hann eigi eftir að springa úr fróðleik during his stay... við munum sakna þín í VRII :o*
Svo ætlar hún Silja mín bara að skella sér í suddann í Eyjum :::GÓÐA SKEMMTUN::: og bið að heilsa Hlínsu beib
Góða skemmtun allir hinir !!!